---
title: Höfn í Dalvík · Hús á Tröllaskaga
canonical: "https://hofn.manifesto.is/"
description: Höfn er fallega uppgert hús í hjarta Dalvíkur fyrir allt að átta gesti.
---

# Höfn í Dalvík

## Dásamlegt einbýlishús í hjarta Dalvíkur

Húsið að Karlsrauðatorgi 4 er 134,8 fm að stærð, á þremur hæðum, og hefur verið gert upp í stíl við aldur sinn — af fagmönnum og sérfræðingum í viðhaldi gamalla húsa. Útkoman er einstaklega fallegt og notalegt hús með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, stofu og borðstofu með kamínu, góðu eldhúsi ásamt þvottaaðstöðu og geymslu í kjallara.

Búið er að endurnýja burðarvirki, þak, klæðningu, glugga, rafmagn, ofna, lagnir, gólf, dren og fleira — en haldið í upprunalegan karakter með nýttum bitum í lofti, gólfefni á stofu og upprunalega stiganum milli hæða.

## Nánd við náttúruna

Höfn stendur á Tröllaskaga, þar sem fjöllin ganga niður í sjó — kjörinn upphafsreitur fyrir skíðaferðir, gönguferðir og hvalaskoðun, allt eftir árstíð.

## Áhugi á að leigja Höfn?

Fylltu út formið hér til hliðar og við höfum samband við þig með upplýsingar um lausar dagsetningar og verð.

Húsið hentar frábærlega fyrir stórfjölskyldur, vinahópa og skíðaferðir — með pláss fyrir allt að 8 gesti.

## Höfn

Fallega uppgert 135 fm einbýlishús frá fyrri tíð, á milli hafs og fjalla á Tröllaskaga — í göngufæri við ströndina, skíðasvæði og gönguleiðir. Gistileyfi fyrir 8 gesti.

## Karlsrauðatorg 4, Dalvík

Dalvík er lítill og líflegur bær við Eyjafjörð, umkringdur fjöllum Tröllaskaga — einn eftirsóttasti áfangastaður landsins fyrir útivistarfólk, jafnt á sumri sem vetri.
